Saturday, May 23, 2009

Eurovision/dansvika

Mánudagur: Vann til 5:30, fór svo á fund hjá Women´s Career Network (WCN). Það var grein eftir mig í mánaðarlega blaðinu þeirra. Ég skrifa minn eigin dálk þar sem var mjög vel tekinn. Gaman að geta skrifað meira. Hékk svo með Lumi restina af kvöldinu.

Þriðjudagur: Vinna og hékk svo með Lumi. Hann lofaði að horfa með mér á Eurovision. Þar sem er engin stemmning í Vín yfir Eurovision, ákvað ég að koma Lumi í Eurovision gír líkt og heima. Við skemmtum okkur mjög vel, þrátt fyrir að forkeppnin var hörmuleg, ég gat ekki trúað þeim löndum sem komust áfram. ég var að deyja úr spenningi, alveg að missa mig yfir að okkar land birtist síðast. Mér fannst Tyrkland og Finnland allt í lagi, en mér og Lumi fannst Ísland langflottast, LUmi fannst lagið rosalega gott, sagði meira að segja að það yrði í toppsætunum, hann sagði að ef Ísland ynni þá myndi hann koma með mér til Ísland og horfa á Eurovision keppnina live á Íslandi. Vá hvað það hefði verið gaman.




Miðvikudagur og fimmtudagur
voru svipaðir, vann og kenndi svo brúðarvals hjá Casomai. Brúðarvals kennslan er rosalega vinsæl og finnst mér æðislega gaman að kenna fólkinu.


Föstudagur:
vinna, jazzballet kennsla og svo brúðarvalskennsla. Ég hef þá hefð að fá mér subway og taka með heim og horfa á gott sjonvarpsefni. Horfði svo á tvöfaldan lokaþátt Grey´s Anatomy. GUÐ MINN GODUR... mæli ekki með að horfa á þann þátt áður en þú ferð að sofa. Var í sjokki og gat varla sofnað. Þurfti að horfa á gamanþátt til að jafna mig. Þvílíkur þáttur. Get ekki beðið eftir næstu seríu.

Laugardagur Mætti eldsnemma til að hjálpa við útskriftina hjá Webster (gamla skólanum mínum) og horfdi á athöfnina sjálfa. Ligia og Lenka voru að útskrifast og Ligia var valecdictorian, hélt aðalræðuna og vann fjölda verðlauna sem gerði okkur vinkonurnar svo stoltar. Ég saknaði fjölskyldunnar smá, fyrir ári voru þau í salnum, veifandi íslenska fáninum, stolt af mér. Allt gekk vel og ég fór heim og gerði mig tilbúna fyrir kvöldið. Ég hjálpaði til í Alumni coctail fyrirpartýinu með að sjá um skráningu og Alexandra hjálpaði í fatahenginu, voða gaman að hanga með henni. Svo kom að útskriftarballinu sjálfu þar sem ég hékk með vinkonum mínum (betra þekktar sem cashmere mafia, nema Aga er á Spáni). Æðislegt að við vorum allar þarna og gátum hangið saman. Við borðuðum góðan mat og svo átti ég að syngja.



Ég sæng 4 lög, 2 cover og 2 original.Ég byrjaði á að syngja "the climb" með miley cyrus, ég veit væmið lag en mér fannst það viðeigandi, svo söng ég mín lög "I feel it at night" og "Blonde in disguise." Að lokum tók ég "Dancing Queen" til að fá alla til að dansa og það gekk vel, allir komu á dansgólfið. DJ-inn var ekki góður, svo ég hefði helst viljað taka yfir en við reyndum að dansa sem mest. Ég var síðan svo þreytt eftir daginn og fæturnir voru að drepa mig svo ég fór heim með u-bahninum. Gott kvöld. Sá svo að Ísland hafði lent í 2.sæti í Eurovision, vá hvað ég var stolt. Til hamingju Ísland, akkúrat 10 ár síðan við lentum síðast í 2.sæti með "All out of Luck".


Sunnudagur
svaf næstum allan daginn og hékk svo með Lumi. Ég var alveg búin á því eftir þessa viku. Sem betur fer var Lumi líka dauðþreyttur svo við vorum góð saman.

Ég hef verið frekar þreytt undanfarið og með heimþrá, líklega mikið v/Eurovision og svo útskriftarinnar (fjölskyldan var hjá mér á þessum tíma fyrir ári). Hér er engin stemmning yfir eurovision og þá vil ég vera heima í partýi hjá vinum og svo fara á Eurovision ball með Pál Óskari. Einnig því ég dýrka vorið heima á Íslandi, svo heitt og getum hangið úti í garði, körfubolta/fótbolta og sund. Vantar einnig alvöru vini hér, allir svo uppteknir. Hlakka mikið til að fara með Lumi til Alicante frá 20-25.júní og svo 9.júlí til 23.júlí til Íslands. Hlakka til að sjá ykkur.

Þangað til...

Monday, May 11, 2009

Manudur sidan eg bloggadi

*Vinnan: Manudur sidan eg byrjadi i Raiffeisen International. Fyrsta manudinn var rosalega mikid ad gera en nuna ekki svo mikid, fer mikid eftir hvad er ad gerast a hvada tima.

Eg er adstodarmanneskja i tveimur deildum og ef badir yfirmenn minir eru i fundum, hef eg litid annad ad gera nema reikninga og adra skriffinsku. Eg fer alltaf i hadegismat med einni stelpu her, hun er mjög indael, meira ad segja svo god ad hun borgar fyrir mig. Malid er ad eg er bara "consultant" og ekki fullur starfsmadur svo ef eg myndi borga ta vaeri tad 6 evrur i stadinn fyrir 2. Otrulegt en satt, svo eg gef henni pening og hun bydur mer upp a afslattinn sinn.

Fyrsta vinnupartyid: einn vinnufelagi minn haetti svo helt svaka kvedjuparty med nogu alkoholi og medlaeti svo eg skemmti mer vel ad kynnast starfsfolkinu. Finir strakarnir i tölvudeildinni, svo hekk med teim i dalitinn tima.

*Womens Career Network (WCN): Eg er PR manneskja fyrir WCN, sem hafa fyrirlestra um ymis malefni og svo fundar "steering committee" sem eg er i einnig einu sinni i manudi. Steering committee fundur var haldinn hja einum forseta felagsins og VA, ekkert sma flott hus sem hun atti. Minnti mig a husin heima. venjulega eru husin her gamaldags, falleg utan en inn a gangi gamalt, ha til lofts og svo framvegis. Tetta hus var mjög modern, minnti mig a husin heima, med svaka flott utsyni og verönd (med haegindasofa).

Fundirnir eru finir, sidast var talad um "Power of Persuasion" nema hvad, fyrirlesarinn var ad tala fyrir framan fullan sal af konum og nefndi 5 ahrifarika karlmenn. Svo eg vard vond i lokin og spurdi "tu veist ad tu nefndir bara karlmenn sem ahrifarika i hop af konum, gaetirdu nefnt daemi um ahrifarikar konur." Tid hefdud att ad sja svipinn a karlinum, hann var alveg stopp og konurnar turftu ad hjalpa honum. Konurnar hrosudu mer mikid fyrir tetta innlegg.

*Alexandra i Vin: Alexandra (sem byr nuna i Berlin med kaerastanum) kom i heimsokn til Vinar og vid kiktum saman a museumsquarter og spjölludum i dagodan tima. Naesta kvöld hittumst vid svo asamt Ligiu og forum a kokteilbar i bermuda dreieck, voda skemmtilegt ad hitta stelpurnar. Fyndid tar sem a naesti bordi var hver annar en annar yfirmadurinn minn, talandi um ad vinnan fylgi manni heim




*Casomai: jazzballet kennslan a föstudögum gengur rosa vel, med fullan sal af konum. Svo eru brudarvalsnamskeidin svaka vinsael, er bokud a fullu. Hef einnig verid ad taka adra tima i Casomai til gamans.

Leysti Valentinu af og kenndi Latin Aerobic fyrst hun turfti ad fara til Italiu fyrst hun missti aettingja i jardskjalftanum tar. Otrulegt ad sja frettirnar og tekkja folk sem lendir i tessu. Aldrei hefdi eg hugsad mer ad tegar eg sa frettirnar um kosovo og sarajevo "i den" ad eg myndi kynnast folki sem lifdi tetta af , sama ma segja um fyrrum kommunistalöndin, vinkonur minar fra pollandi, tekklandi og rumeniu. Otrulegar sögurnar sem taer hafa ad segja af lifi sinu og breytingum tar.

*Islendingar i Vin: hitti aftur islenska konu sem eg kynntist a torrablotinu, hun kom til vinar til ad kjosa svo vid notudum taekifaerid og fengum okkur is saman. Hun kom einnig med son sinn, rosa ljufur med okkur eftir ad hafa verid havaer i söfnunum (fannst fyndid ad tad bergmaladi, svo helt tvi afram).

Kikti a ibud hja islendingi sem er ad flytja heim, hann er a ellilifeyrisaldri svo eg kikti a ibudina og spjalladi svo vid hann i dagodan tima. Gaman ad kynnast honum og lifi hans her i Vin sem og heima.

*4 fridagar i vinnunni sidan eg byrjadi, jibbi. Svo hef verid dugleg ad eyda tima med Lumi tegar eg er ekki upptekinn. Svo verdur madur lika ad taka sma tima fyrir sig, enda tvilik dagskra alltaf.

Eg og Lumi aetlum til Alicante i lok juni til ad fagna 5 ara afmaeli okkar. Hlakka mikid til ad fa alvöru fri med honum og sja sumarhus claessen fjölskyldunnar.

Er komin med mikla heimtra, hlakka mikid til i ad kikja heim i sumar. Stefni a juli svo vonast til ad sja ykkur ta.